Önnur umferð þingkosninga hafin

Kjörstaðir hafa verið opnaðir fyrir aðra umferð þingkosninga í Mjanmar. Fulltrúa eftirlitsstofnana grunar að herforingjastjórnin muni halda völdum að þeim loknum í gervi borgaralegra stjórnvalda. Kjósandi sýnir sérstakt blek á litla fingri til marks um að hún hafi greitt atkvæði í þingkosningunum.EPA / NYEIN CHAN NAING Herinn rændi völdum eftir kosningar 2020 og sagði brögð í tafli. Afgerandi sigur Lýðræðisfylkingar Aung San Suu Kyi á flokkum hliðhollum hernum hefði náðst með kosningasvindli. Hún hefur síðan þá setið í stofufangelsi, flokkur hennar leystur upp og herinn stjórnað með harðri hendi. Samstöðu- og þróunarflokkurinn, sem nýtur stuðnings hersins, hlaut nærri 90 prósent atkvæða í fyrstu umferðinni . Þriðji áfangi kosninganna verður svo haldinn 25. janúar.