Fjöldi landsmanna urðu varir við magnað sjónarspil í gær þegar norðurljósin dönsuðu á himni. Skipstjóri hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Eldingu, sem farið hefur með ferðamenn í norðurljósaferðir í rúman áratug, segist aldrei áður á ferlinum hafa séð jafn litrík og falleg norðurljós. „Við fórum klukkan níu út og þetta var þegar byrjað yfir, flott ljós, strax klukkan átta um kvöldið eða fyrr. Og svo fórum við bara hérna út í myrkrið og þar sést þetta og fólk nýtur þess mikið betur að horfa á það þar og það logaði allt alveg fram til rétt fyrir ellefu,“ segir Guðmundur E. Magnússon, skipstjóri.. Ferðamenn orðlausir af undrun Guðmundur hefur farið með ferðamenn í norðurljósaferðir í rúman áratug og segir ferðamennina marga hafa orðið orðlausa af undrun. „Þau eru aftur á dekki og dásama þetta alveg hreint. Sumir hafa aldrei nokkurn tímann séð þetta og eiga ekki orð yfir þessu. Þetta er með því meira sem maður hefur séð hérna. Það voru svo miklir litir í þessu, bara alveg frá Esjunni og vestur á flóann og suður úr.“ Guðmundur segist aldrei áður hafa upplifað jafn litríkt og fallegt sjónarspil. „Ég hef ekki séð þau svona mikil sko. Það hafa komið dagar í gegnum árin, en þetta er það mesta sem ég hef séð hérna og ég hef verið hér í tíu, ellefu ár.“ Guðmundur lætur af störfum nú um mánaðamót og segir norðurljósasýningu gærkvöldsins góða kveðjugjöf. „Ég lít á þetta þannig, hann þarna uppi er að senda mér svona góðar kveðjur.“ Norðurljósin dönsuðu á himninum í gærkvöldi og hafa margir deilt myndskeiðum af sjónarspilinu á samfélagsmiðlum. Skipstjóri sem hefur farið með ferðamenn í norðurljósaferðir í rúman áratug segist aldrei hafa séð norðurljósin jafn litrík og falleg.