Banaslys í Rangárþingi í gær

Upp úr kl. 15 í gær barst lögreglu tilkynning um slys í Rangárþingi. Ásamt lögreglu fóru sjúkraflutningar og slökkvilið á vettvang. Um var að ræða vinnuslys. Einn einstaklingur var í slysinu og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi. Í færslu Lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi. Lesa meira