Hamar/Þór fann síðasta miðann inn í undanúrslit bikarsins

Ármann og Hamar/Þór mættust í fremur sveiflukenndum leik í 8-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta í kvöld. Þar náði Hamar/Þór í síðasta farmiðann í undanúrslit eftir 82-86 sigur. Jadakiss Guinn skoraði 26 stig fyrir Hamar/Þór í kvöld.RÚV / Mummi Lú Ármann byrjaði betur og unnu fyrsta leikhluta 29-21. Þaðan tók Hamar/Þór góða syrpu og liðið skoraði 33 stig í öðrum leikhluta á móti 14 stigum Ármanns og staðan í hálfleik 43-54 þar sem Hamar/Þór leiddi. Þaðan snerist taflið hins vegar við því lið Ármanns rétti úr kútnum í þriðja leikhluta og sá fjórði var afar jafn. Loks var það Hamar/Þór sem skóp sigurinn, 82-86. Liðin sem leika til undanúrslita eru þessi: Grindavík Tindastóll Keflavík Hamar/Þór