Tók málið í sínar hendur og bjó til skautasvell í garðinum

Líklegast fagna fáir kuldakastinu sem nú ríkir eins og fjölskylda í Hafnarfirði sem er með skautasvell í garðinum. Fjölskylduföðurnum fannst vanta stað í Hafnarfirði til skautaiðkunar og tók málið í sínar hendur. „Ég á þrjú börn og frændsystkini sem æfa öll hokkí með Skautafélagi Reykjavíkur. Það vantar orðið stað í Hafnarfirði til að skauta. Eina sem var eftir var að búa þetta til sjálfur til að það væri hægt að halda áfram að skauta, leika sér og æfa sig,“ segir fjölskyldufaðirinn Ívar Pétursson. Ívar hefur prófað sig áfram síðustu fimm ár og alltaf fer svellið stækkandi ár frá ári. Í upphafi var það tveir sinnum þrír metrar en er núna rúmlega fimm sinnum ellefu. Hann segir viðhaldið sem fylgi svellinu meira en margir myndu halda. Honum finnist þó gaman að bralla við það með krökkunum sínum.