Formaður Grænlandsnefndar þingsins býður bandarískum öldungadeildarþingmönnum til fundar

Nokkrir bandarískir öldungadeildarþingmenn eru væntanlegir til fundar við danska þingmenn í næstu viku. Ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland verður til umræðu. Til stendur að gestirnir ræði við Grænlandsnefnd þingsins að sögn Aaju Chemnitz, þingmanns IA og formanns nefndarinnar. Fulltrúum úr utanríkismálanefnd hefur einnig verið boðið ásamt Pipaluk Lynge, formanni utanríkismálanefndar grænlenska þingsins. Chemnitz undirbjó fundinn ásamt Lisu Murkowski, öldungardeildarþingmanni Repúblikana fyrir Alaska, en þær eiga að baki langt samstarf. Nákvæm tímasetning fundarins hefur enn ekki verið ákveðin að því er fram kemur í umfjöllun DR . Chemnitz segir undirbúningi miða vel. Hún býst við háttsettum þingmönnum úr báðum flokkum öldungadeildarinnar bandarísku. Bandaríski utanríkisráðherrann Marco Rubio hefur boðið danska utanríkisráðherranum Lars Løkke Rasmussen og Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, til fundar í Washington í vikunni. Hún segist ætla að verja hagsmuni Grænlendinga af festu og árétta að landið sé ekki til sölu.