Seðlabankastjóri segir bankanum stefnt til að þrýsta á hlýðni við forsetann

Jerome Powell, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir dómsmálaráðuneytið hafa stefnt bankanum fyrir ákærudómstól, vegna ummæla hans fyrir þingnefnd um kostnað við endurnýjun bygginga bankans. EPA / WILL OLIVER Það segir Powell vera þátt í þrýstingi sem forsetinn Donald Trump hefur beitt bankann til að ná niður vöxtum. Forsetinn hefur lengi krafist þess að vextir verði lækkaðir hraðar, sem fer gegn stjórnarskrárvörðu sjálfstæði hans. Trump kveðst ekki vita af stefnunni. „Hótun um sakamál er afleiðing þess að Seðlabankinn ákveður vexti til að þjóna hagsmunum almennings frekar en að fylgja vilja forsetans,“ sagði Powell í þungorðri yfirlýsingu seint í gærkvöld.