Sturla Böðvarsson fæddist í Ólafsvík í nóvember 1945, sonur Böðvars Bjarnasonar og eiginkonu hans Elínborgar Ágústsdóttur. Sturla lauk sveinsprófi í húsasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík, varð húsasmíðameistari og lauk BS-prófi í byggingatæknifræði frá Tækniskóla Íslands. Sturla var sveitarstjóri og síðar bæjarstjóri í Stykkishólmi 1974-1991 en það ár var hann kosinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Vesturlandi til 2003 og frá 2003-2009 sem þingmaður Norðvesturkjördæmis. Áður en hann var kjörinn á þing tók hann nokkrum sinnum sæti á þingi sem varaþingmaður. Sturla gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, á vettvangi sveitarfélaga, Alþingis og á landsvísu. Hann var skipaður samgönguráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar árið 1999 og gegndi því embætti til ársins 2007. Hann var forseti Alþingis 2007-2009. Sturla var framkvæmdastjóri þróunarfélags Snæfellinga 2011-14 og bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar 2014-18. Eftirlifandi eiginkona hans er Hallgerður Gunnarsdóttir og eignuðust þau fimm börn, tvo syni og þrjár dætur.