Búið að skrá kílómetrastöðu á 85% bíla

Landsmenn hafa skráð kílómetrastöðu á 85 prósent þeirra rúmlega 300 þúsund bíla sem ný lög um kílómetragjald ná yfir. Greiða á kílómetragjald mánaðarlega og er fyrsti gjalddagi 1. febrúar. Greiðslurnar reiknast út frá tveimur síðustu skráningum á kílómetrastöðu á þeim tíma sem viðkomandi hefur átt bílinn. Ef tvær skráningar liggja ekki fyrir áætlar Skatturinn meðalaakstur og reiknar greiðslur út frá því. Hægt er að uppfæra skráningu á kílómetrastöðu á 30 daga fresti. Bílar á ferð.RÚV / Þórdís Arnljótsdóttir