Samfélagsmiðlarisinn Meta, sem á Facebook, Instagram og Threads, segir að yfir 540 þúsund reikningum hafi verið lokað í Ástralíu eftir að lög tóku þar gildi um samfélagsmiðlabann fyrir börn yngri en sextán ára. Stjórnvöld í Ástralíu hafa farið fram á það að stórir samfélagsmiðlar eins og Meta, TikTok og YouTube komi í veg fyrir að börn geti átt þar reikninga. Grípi fyrirtækin ekki til viðeigandi ráðstafana þá verði þau sektuð um 33 milljónir bandaríkjadala, eða rúmlega fjóra milljarða króna. Meta segir að lögunum verði fylgt en hvetur áströlsk stjórnvöld til þess að vinna með fyrirtækjum í þessari grein til að finna betri leið fram á við. Til dæmis með því að hvetja greinina til þess að miða enn frekar að því að tryggja örugga upplifun fyrir börn á netinu. í stað þess að grípa til almennra bannákvæða, segir í yfirlýsingu frá Meta.