Leikirnir okkar: Ísland-Danmörk á EM 2010

Fram að EM karla í handbolta sýnum við 12 eftirminnilega leiki strákanna okkar í gegnum tíðina. Leikirnir eru sýndir á RÚV 2 alla daga fram að 16. janúar. Strákarnir okkar komu í vígahug á mótið eftir að hafa ekki komist á HM 2009. Mótið fór brösuglega af stað og eftir tvö jafntefli varð Ísland að vinna Danmörku í lokaleik riðlakeppninnar til að falla ekki úr keppni á fyrstu hindrun. Danir voru ríkjandi Evrópumeistarar en sáu ekki til sólar gegn vörn Íslands. Íslenska liðið hélt svo áfram og vann bronsverðlaun á mótinu. Aron Pálmarsson stökk á þessu móti fram á alþjóðasviðið með íslenska liðinu og drakk í sig reynslu manna á borð við Guðjón Val Sigurðsson, Arnór Atlason, Snorra Stein Guðjónsson, Róbert Gunnarsson, Ólaf Stefánsson og Alexander Petersson.