Kærir synjun um gæsluvarðhald vegna kynferðisbrots í Hafnarfirði til Landsréttar

Héraðssaksóknari hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að hafna kröfu um gæsluvarðhald yfir manni á fimmtugsaldri í Hafnarfirði til Landsréttar. Maðurinn er ákærður fyrir að brjótast inn á heimili í Hafnarfirði að næturlagi og brjóta á tíu ára dreng. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson héraðssaksóknari, en Vísir greindi fyrst frá. Ákvörðun Landsréttar ætti að liggja fyrir á næstu dögum. Maðurinn er á fimmtugsaldri og var ákærður á föstudaginn. Lögregla taldi að forsendur fyrir gæsluvarðhaldi væru ekki fyrir hendi meðan málið var rannsakað en héraðssaksóknari fór fram á gæsluvarðhald yfir manninum um leið og málið kom á borð hans.