Gæsluvarðhald yfir grískum manni, sem var handtekinn í tengslum við mannslát í Kópavogi í nóvember, hefur verið framlengt um fjórar vikur á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglu barst tilkynning í nóvember um meðvitundarlausan mann í íbúð á Kársnesi. Maðurinn, sem var Portúgali um fertugt, var látinn þegar lögregla kom á staðinn. Maðurinn var með nokkra stunguáverka og lögreglan virtist í fyrstu telja líklegt að hann hefði veitt sér áverkana sjálfur. Síðar var grískur félagi hans handtekinn í tengslum við andlátið.