Upplýsingakerfi liggur niðri og ekki hægt að hafa eftirlit
Upplýsingakerfi lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli liggur niðri. Ekki er hægt að framkvæma fullnægjandi eftirlit með farþegum á meðan. Umferð um flugvöllinn er ekki mikil þessa stundina og vonast er til að kerfið verði brátt komið í lag.