Inga Sæland segist hafa veitt Samtökum um karlaathvarf styrk, þegar hún var félags- og húsnæðismálaráðherra, vegna þess að henni hafi fundist verkefnið þarf. Ráðherra hafi síðasta orðið í svona ákvörðunartöku. Fram kom í Speglinum í kvöld að Samtök um karlaathvarf hafi verið í hópi þeirra sem fengu milljónastyrk frá Ingu Sæland, þáverandi félags-og húsnæðismálaráðherra, í lok nóvember þrátt fyrir að matsnefnd hefði talið að þau væru ekki réttu aðilarnir. Inga var gestur Kastljóss í kvöld og var spurð út í þessa ákvörðun. Hún segist hafa gefið verkefninu styrk því henni fannst það þarft. „Það hefur skort mjög mikið á það finnst mér að það sé tekið sérstaklega utan um karlmenn og þeir hafa meira átt undir högg að sækja finnst mér, oft á tíðum.“ Hún segist hafa tekið ákvörðunina í sameiningu við einstaklinga í ráðuneytinu. „Við gerum það í sameiningu, ég og þessir tveir aðilar inni í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, sem leggja fyrir mig að við teljum að það sé kannski ekki þörf á þessu. Þá segi ég: „Ég er ekki sammála“ og svo einkennilegt er það að það er eiginlega ráðherrann sem hefur síðasta orðið.“