Lögreglan handtók einn vegna annarlegs ástands.RÚV / Ragnar Visage Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur málum í nótt þar sem aðilar voru grunaðir um vörslu eða meðferð ávana- og fíkniefna en bæði málin voru leyst með skýrslu á vettvangi. Einn maður var handtekinn miðsvæðis í Reykjavík þar sem hann var í annarlegu ástandi og fylgdi ekki fyrirmælum lögreglu. Hann var vistaður í fangageymslu vegna ástands síns.