Framboð Péturs ber vott um virkni

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hefur síður en svo áhyggjur af því að hart sé tekist á um forystu flokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Hún telur að það sé þvert á móti góðs viti fyrir bæði flokksmenn og almenna kjósendur að líf sé í flokknum og að fólk vilji gefa sig fram til starfa fyrir samborgarana.