Högnuðust um 32 milljarða með sölu IKEA í Eystrasaltsríkjum

Sala félaga í eigu Jóns og Sigurðar Gísla Pálmasona á rekstri IKEA í Eystrasaltsríkjunum skilaði þeim 32 milljarða króna hagnaði 2024. Gengið var frá sölunni til Inter IKEA Group í lok desember það ár. Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu . Blaðið vísar í ársreikning Eignarhaldsfélagsins Hofs, sem bræðurnir eiga, fyrir árið 2024. Hagnaður félagsins nam 31,8 milljörðum. Handbært fé jókst um 57 milljarða króna frá 31. ágúst til 31. desember 2024 og var 60,6 milljarðar í lok ársins. Verslun IKEA í Kauptúni.RÚV / Arnór Fannar Rúnarsson