Danir auka viðveru hersins á Grænlandi

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, og Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra ræða við blaðamenn að loknum fundi í utanríkismálanefnd danska þingsins í gær.EPA / Sebastian Elias Uth Danir ætla að auka viðveru hers síns á Grænlandi. Þetta segir Troel Lund Poulsen varnarmálaráðherra Danmerkur í skriflegum samskiptum við AFP. Bandarísk stjórnvöld hafa lengi gagnrýnt þau dönsku fyrir að hafa vanrækt varnir Grænlands. Poulsen segir auk þess að áhersla verði lögð á aukna viðveru Atlantshafsbandalagsins á norðurslóðum. Danir eigi í samskiptum við bandamenn sína um aukin umsvif á þessu ári.