Eldisfiskur úr keri í landeldisstöð í Tálknafirði komst í sjó 30. desember þegar flæddi yfir í kerinu. Matvælastofnun fékk ekki tilkynningu um strokið fyrr en henni barst nafnlaust ábending 9. janúar um að dauð og hálfdauð bleikjuseiði hefðu fundist í höfninni. Matvælastofnun greinir frá þessu í dag. Þar segir að við eftirgrennslan hafi komið í ljós að strokufiskurinn væri frá Tungusilungi sem er með ker niðri í fjöru skammt frá Tálknafjarðarhöfn. Stjórnendur Tungusilungs virkjuðu ekki viðbragðsáætlun vegna stroksins. Þegar starfsfólk Matvælastofnunar grennslaðist fyrir um strokið fengust þær upplýsingar að um 27 þúsund fiskar væru í kerinu þar sem flæddi yfir. Tungusilungsmenn telja að nokkrir tugir fiska hafi farið úr kerinu, flestir eða allir dauðir eða laskaðir. Þeir segja ekki hægt að fullyrða um fjölda fiska sem sluppu fyrr en kerið verður tæmt á næstu vikum. Matvælastofnun rannsakar atvikið og gefur út skýrslu þegar rannsókn er lokið.