7.000 á biðlista eftir aðgerð og helmingur hefur beðið í meira en ár

Bið eftir augasteinsaðgerð hefur lengst síðustu ár. Alls eru rúmlega 7.000 á biðlista hjá einkastofum og opinberum heilbrigðisstofnunum. Þetta má lesa úr mælaborði Landlæknis . Um helmingur þeirra sem bíða hafa beðið lengur en í 12 mánuði. Samkvæmt mælaborði Landlæknis er mesta biðin á Landspítalanum, þar sem 5.981 beið eftir aðgerð þegar gögn voru síðast tekin saman í september. 193 biðu eftir aðgerð hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri og 940 hjá einkastofunni Lentis. Algengast er að aðgerðin sé gerð til að fjarlægja ský á augasteini en einnig til að laga sjóngalla og hún tekur almennt um 10 til 15 mínútur. Haustið 2020 voru rúmlega 1.600 á biðlista og svo hefur fjölgað á hverju ári. Í september 2024 biðu rúmlega 5.700 og því fjölgaði um 1.400 á biðlista milli ára og í september í fyrra biðu 7.114 manns. Læknar á einkastofum framkvæmdu meirihluta þessara aðgerða í fyrra eða tæplega 1.500 frá byrjun september 2024 til loka ágúst í fyrra. Um þúsund voru gerðar á Landspítala og rúmlega 200 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Enginn hafði beðið lengur en í þrjá mánuði eftir aðgerð hjá einkastofu í september, samkvæmt mælaborði Landlæknis. Biðin virðist því vera lengst innan opinbera kerfisins. Gögn mælaborðsins sýna að rúmlega 3.400 hafi beðið lengur en tólf mánuði eftir aðgerð á Landspítalanum, sem er fjölgun um rúmlega 1.400 frá sama tíma árið þar áður og 2.400 frá 2023.