Forseti bæjarstjórnar á Akranesi gefur ekki kost á sér í vor

Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraness, gefur ekki kost á sér í kosningum í maí. Skessuhorn sagði fyrst frá. Valgarður hefur setið í bæjarstjórn í tólf ár fyrir Samfylkinguna. Stillt verður upp á lista og Valgarður á sæti í uppstillingarnefnd. Samfylkingin á Akranesi hefur boðað til félagsfundar næsta laugardag þar sem kosið verður um tillögu stjórnar um að stilla skuli upp svo að kynjahlutföll séu jöfn og tryggt sé að fjölbreyttir frambjóðendur séu á listanum. Í fundarboðinu kemur einnig fram að listi Samfylkingarinnar á Akranesi verði borinn upp til samþykktar félagsmanna ekki síðar en laugardaginn 28. febrúar. Valgarður hefur setið í bæjarstjórn Akraness í tólf ár en hyggst ekki gefa kost á sér í vor.RÚV / Ragnar Visage