Fram tók á móti Stjörnunni í fyrsta leik þrettándu umferð Olísdeildar kvenna í handbolta í kvöld. Heimakonur höfðu betur, 36-30 . Framarar tóku fljótt forystuna og voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 17-14. Þær komust mest átta mörkum yfir í seinni hálfleik og sigurinn var aldrei í hættu. Ásdís Guðmundsdóttir var markahæst í liði FramRÚV / Mummi Lú Ásdís Guðmundsdóttir fór mikinn í liði Fram og skoraði 10 mörk. Hún var þó ekki markahæst í leiknum því Natasja Hammer skoraði 13 fyrir Stjörnuna. Fram er í fjórða sæti deildarinnar með 13 stig, Stjarnan í því sjöunda með 5 stig. Staðan í deildinni .