EPA/EFE / IRNA NEWS AGENCY HANDOUT Í tilkynningu frá Flightradar24 kemur fram að Íran hafi gefið út svokallaða Notam-tilkynningu um að lofthelgi landsins verði lokað tímabundið. Samkvæmt tilkynningunni mun lokunin standa yfir í um tvær klukkustundir. Lokunin gildir um öll flug nema millilandaflug til og frá Íran, þau flug geta lent gegn leyfi stjórnvalda. Á flugkorti Flightradar24 sjást nær engar flugvélar fljúga yfir Íran.