Lofthelgi Íran hefur verið opnuð á ný eftir um fimm klukkustunda, óútskýrða lokun. Þetta kemur fram á vef Guardian . Í tilkynningu frá Flightradar24 fyrr í kvöld kom fram að Íran hefði gefið út svokallaða NOTAM-tilkynningu til flugmanna um að lofthelgi landsins verði lokað tímabundið. Samkvæmt henni átti lokunin að standa yfir í um tvær klukkustundir en alls var hún lokuð í um fimm klukkustundir. Allt flug innan lofthelginnar var bannað að undanskildu millilandaflugi til og frá Íran með opinberu leyfi.