Stjórnvöld í Úkraínu hafa lýst yfir neyðarástandi vegna ítrekaðra loftárása Rússa á orkumannvirki undanfarna daga. „Afleiðingarnar af árásum Rússa og kólnandi veðurfari eru alvarlegar,“ skrifaði Zelensky á Telegram í gær og bætti því við að til stæði að losa um reglur um útgöngubann vegna ástandsins. Fjórtán stiga frost er nú í Kyiv, og búist við enn kaldara veðri næstu daga. Rafmagnsleysi hefur hrjáð íbúa höfuðborgarinnar að undanförnu; eftir árásir Rússa í fyrrinótt, var um sjötíu prósent af húsum í Kyiv án rafmagns. Um fjórar og hálf milljón manns búa í Kyiv og úthverfum borgarinnar. Mykola Kolisnyk, vara-orkumálaráðherra Úkraínu sagði á blaðamannafundi á þriðjudaginn að auknar árásir Rússa á orkumannvirki í kuldakastinu að undanförnu væru merki um að þeir væru að reyna að valda upplausn í samfélaginu. „Við sjáum að óvinurinn beitir sér af öllu afli til að eyðileggja orkukerfið,“ sagði Kolisnyk.