Spenna og stress í íslenska hópnum

EM karla í handbolta hófst í dag og á morgun spilar Ísland fyrsta leik sinn, á móti Ítalíu klukkan 17:00. Leikmenn Íslands eru spenntir fyrir því að mótið byrji, sem og Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari: „Ég held að allir vilji bara að þetta byrji og að við fáum að komast í þessa stemningu og þennan gír.“ Elvar Örn Jónsson er líka spenntur: „Það er gaman að vera kominn á hótelið og sjá liðin hérna, þá kemur ákveðinn svona ákveðinn fiðringur og smá stress en það er bara gott.“ Ítalir spila oft á tíðum óhefðbundinn handbolta en margir leikmenn Íslands þekkja þá úr þýsku deildinni þar sem lið þeirra spila svipaðan handbolta. Þeir séu því klárir í slaginn. Ísland - Ítalía byrjar 17:00 á morgun föstudag, Stofan hitar upp frá 16:20 á RÚV.