Sérstakur erindreki Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, segir að annað þrep í áætlun Bandaríkjastjórnar um frið á Gaza hafi tekið gildi. Samkvæmt því eiga Hamas-samtökin að láta af völdum og ný bráðabirgðastjórn tekur við. Hver sú stjórn verður er eitt af því sem enn er óljóst. Samkvæmt samkomulaginu verður það 15 manna nefnd, skipuð palestínskum teknókrötum, sem starfar undir annarri nefnd, svokallaðri friðarnefnd, sem Bandaríkjaforseti sjálfur stýrir. Hamas-samtökin styðja þetta fyrirkomulag, miðað við yfirlýsingu í dag og viðræður um framhaldið eru þegar hafnar í Kaíró í Egyptalandi. Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, tilkynnti í gær að annað þrep friðaráætlunar væri hafið og Bandaríkin byggjust við því að Hamas stæði við skuldbindingar sínar að fullu. Sameinuðu þjóðirnar ítrekuðu stuðning við að samkomulaginu verði framfylgt að fullu. „Við vonum að annað þrep geri okkur kleift að veita enn meiri neyðaraðstoð og við erum reiðubúin að aðstoða stríðandi fylkingar við að framfylgja samkomulaginu,“ segir Stephane Dujarric, talsmaður framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Í yfirlýsingu frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, segir að frá upphafi vopnahlés, sem tók gildi í október, hafi minnst 100 börn verið drepin á Gaza. „Það jafngildir því að um ein stúlka eða drengur séu drepin á hverjum degi, í vopnahléi,“ segir James Elder, talsmaður UNICEF. Elder bendir á það séu aðeins staðfestar opinberar tölur. Þau séu að líkindum mun fleiri.