Finnur Ricart Andrason gefur kost á sér til oddvita Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórakosningar. Hann vill vera hluti af sameiginlegu framboði á vinstri vængnum. „Kjósendur eiga skilið að fá einn skýran og sameinaðan valkost til vinstri. Slíkt samstarf yrði í þágu réttláts og græns samfélags. Ég vona að vinstri vængurinn velji samstarf frekar en sundrung,“ segir Finnur. Finnur hefur starfað á sviði umhverfismála undanfarin ár og var forseti Ungra umhverfissinna. Líf Magneudóttir er sitjandi oddviti VG. Hún hefur sagst vilja leiða flokkinn bjóði hann fram undir eigin merkjum, en ekki hefur verið tekin formleg ákvörðun um það. Finnur Ricart.Aðsend