Blása nýju lífi í Latabæ á þrítugasta afmælisárinu

Latibær og litríkar persónurnar sem þar búa voru kynnt til sögunnar í bókinni Áfram Latibær eftir Magnús Scheving árið 1995. Hugmyndin með Latabæ er að hvetja börn og foreldra þeirra til hreyfingar og hollari lifnaðarhátta. Vinsælt barnaleikrit var gert eftir bókinni og rétt eftir aldamótin samdi Magnús við sjónvarpsstöðina Nickolodeon um gerð sjónvarpsþátta, sem nutu mikilla vinsælda víða um heim. Fyrirtækið var í eigu erlendrar fjölmiðlasamsteypu frá 2011 til 2024, þegar Magnús keypti réttinn aftur. Hann segir það gaman að taka við Latabæ á ný. „En auðvitað er maður smá þreyttur að hafa verið með Latabæ í öll þessi ár. En Latibær hefur alltaf gefið mér til baka, sérstaklega þegar maður fer að sjá áhrifin.“