Þýskaland hafði betur gegn Austurríki í fyrsta leik sínum á EM karla í handbolta í kvöld, 30-27 . Þjóðverjar, sem Alfreð Gíslason þjálfar, náðu forystunni snemma leiks og leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 12-7. Austuríkismenn fengu tækifæri til að saxa almennilega á forskotið í seinni hálfleik en Þjóðverjar héldu út og unnu þriggja marka sigur. Liðin eru í A-riðli ásamt Spáni og Serbíu sem mættus fyrr í dag. Sá leikur spilaðist svipað, Spánverjar leiddu frá fyrstu mínútu og unnu 29-27 . Tveggja hesta hlaup í C-riðli Frakkland og Noregur byrjuðu mótið af krafti en liðin eru saman í riðli. Frakkar unnu Tékka 42-28 og Noregur vann sömuleiðis stórsigur á Úkraínu, 39-22 . Öll úrslit, stöður í riðlum og nýjustu fréttir af mótinu má finna á sérstakri EM síðu RÚV .