Machado segist hafa fært Trump friðarverðlaun sín

Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist hafa gefið Donald Trump Bandaríkjaforseta friðarverðlaun Nóbels, sem hún hlaut í lok síðasta árs. Machado hafði þegar sagst vilja gefa Trump verðlaunin á fundi þeirra í dag og sagði það viðurkenningu á skuldbindingu hans fyrir frelsi Venesúela. Hún tók ekki sérstaklega fram hvort forsetinn hefði þegið verðlaunin. Trump hefur þó sagt áður að það væri honum mikill heiður að taka á móti verðlaununum frá Machado. Nóbelsnefndin í Osló hefur aftur á móti sagt að það samræmist ekki reglum þeirra. Trump var sjálfur tilnefndur til verðlaunanna. Machado yfirgaf Venesúela í desember á laun eftir að hafa verið í felum frá hausti 2024. Þá lagði hún upp í langa hættuför til Noregs með fulltingi Bandaríkjamanna. Hún tileinkaði Trump og venesúelsku þjóðinni verðlaunin. Hún missti af því að taka við friðarverðlaunum í Ósló en yfirvöld í Venesúela höfðu svipt hana vegabréfi og bannað henni að yfirgefa landið eftir að hún hélt fram sigri stjórnarandstöðuframbjóðandans Edmundos G. Urrutia í forsetakosningum sumarið 2024.