Mikið hefur snjóað á Akureyri undanfarna daga og snjómokstursmenn hafa því haft nóg að gera. Finnur Aðalbjörnsson er búinn að vera í 16 ár að moka fyrir bæinn segir þetta ekki lærast á einum degi. „Þetta er alltaf gaman enn þá, annars væri maður nú ekkert í þessu ef þetta væri ömurlegt sko.“ Hann segir byrja að moka um fjögur þegar snjórinn er mikill. „2017, þá fórum við 17 nætur í röð klukkan 3 eða 4.“