Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, segir af sér þingmennsku vegna tilrauna til að kaupa vændi árið 2012. Vísir greindi frá þessu í morgun og segir að Guðbrandur hafi tekið ákvörðun um að segja af sér þingmennsku vegna fréttar Vísis um málið. Í yfirlýsingu segir hann að hann hafi gert alvarleg mistök, sem hann sjái mjög eftir. Hann hafi neitað sök hjá lögreglu. Guðbrandur hefur verið þingmaður fyrir Suðurkjördæmi frá 2021. Fréttin verður uppfærð.