Það færist meiri ró yfir veðrið í dag með minnkandi vindi. Þó má búast við slyddu eða snjókomu með köflum fyrir norðan. Hitastig verður rétt undir frostmarki. Veðurspáin er svohljóðandi: Minnkandi norðlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu eftir hádegi. Slydda eða snjókoma með köflum fyrir norðan og jafnvel rigning úti við sjóinn, en þurrt syðra. Hiti kringum frostmark, en kólnar heldur í kvöld. Fremur hægur vindur í fyrramálið, yfirleitt þurrt á landinu og frost 0 til 5 stig. Vaxandi suðaustanátt síðdegis á morgun, 10-18 sunnan- og vestanlands undir kvöld með hlýnandi veðri þar og lítils háttar slyddu eða rigningu.