Það getur verið snúið að bera stöður á vellinum saman í nútímahandbolta, sérstaklega þegar kemur að skyttu- og miðjumannastöðum. Til einföldunar er hér notast við þær leikstöður sem leikmenn eru skráðir inn á mótið í. Sjö leikstöður eru og er íslenska liðið betur mannað í þeim öllum. Stundum er það vegna eins áberandi góðs leikmanns, stundum er það blanda þeirra leikmanna sem spila stöðuna. Hér að neðan má sjá upptalningu á stöðunum og þá leikmenn sem stöðuna skipa. Varnarmenn eru ekki teknir sérstaklega fyrir enda spilar flestir á einhverjum tímapunkti vörn þó sumir séu sérhæfðir varnarmenn.