Ákvörðun um að hætta áætlunarflugi Icelandair til Istanbúl í Tyrklandi frá og með 1. febrúar er alfarið á ábyrgð stjórnenda flugfélagsins. Sú ákvörðun byggir á mistökum stjórnenda, að því er segir í yfirlýsingu stjórnar Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, sem Jón Þór Þorvaldsson, formaður félagsins, skrifar undir. Icelandair sagði í tilkynningu í dag að uppbygging flugleiðarinnar hafi krafist undanþágu frá kjarasamningi Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Icelandair. Stéttarfélagið hafi hinsvegar dregið undanþáguna til baka frá og með 1. febrúar. „Því miður mun afturköllun undanþágunnar leiða til kostnaðarhækkana og óvissu sem gera það að verkum að þessi flugleið og frekari fjárfesting í uppbyggingu hennar er að óbreyttu ekki lengur raunhæf fyrir félagið,“ var haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í tilkynningunni. Stjórn FÍA segir í yfirlýsingunni að Icelandair hafa gert samstarfssamning við Turkish Airlines í júní 2023. Í kjölfarið hafi undirbúningur að flugi Icelandair til Istanbúl hafist. „Alvarleg mistök voru gerð í þeim undirbúningi af hálfu Icelandair. Við áætlanagerð félagsins gleymdist að gera ráð fyrir lögbundnum hvíldartíma áhafna í Istanbúl.“ Þegar mistökin hafi uppgötvast í maí hafi Icelandair leitað til FÍA um undanþágu frá kjarasamningi. Sú undanþága hafi verið veitt og segir í yfirlýsingu FÍA að slíkar undanþágur hafi verið veittar ítrekað í gegnum árin án ágreinings. Áætlunarflug Icelandair til Istanbúl hófst síðan í haust. Í yfirlýsingu FÍA er ástæða afturköllunarinnar rakin frekar. Þar segir að kjarasamningur milli FÍA og Icelandair hafi verið undirritaður 2020. Í haust hafi Icelandair ákveðið einhliða að hafna einu ákvæði samningsins. FÍA skaut því máli til Félagsdóms sem úrskurðaði í desember að þáverandi formann samninganefndar Icelandair hafi skort umboð og því hafi ákvæðið ekki verið hluti af kjarasamningi. Hæstiréttur staðfesti þann úrskurð. FÍA segir þetta hvorki hafa verið ósk né að frumkvæði félagsins en að þetta hafi þær afleiðingar að allar undanþágur séu nú lagalega ógildar, þar á meðal undanþágan sem FÍA veitti vegna flugs til Istanbúl. „Ákvörðun um að fella niður flug á Istanbúl er alfarið á ábyrgð stjórnenda félagsins og byggir á mistökum stjórnenda sem nú er gerð tilraun til að varpa yfir á flugmenn. Ekkert í núverandi kjarasamningi kemur í veg fyrir áframhaldandi flug Icelandair til Istanbúl og öll vísan í sök FÍA í því máli eingöngu yfirvarp.“ Stjórn og félagsmenn FÍA harmi ákvörðun Icelandair og hafni alfarið ásökunum um hlut félagsins í þeirri ákvörðun.