Fréttamaður og tökumaður á Akureyri fóru á stúfana í dag til að athuga stemninguna fyrir EM karla í handbolta meðal ungra handboltastjarna í KA. Allar voru þær sammála um að Ísland kæmist langt á mótinu og spáðu sumir sigri á mótinu. Á æfingum í dag voru krakkar á aldrinum sjö til átta ára og svo drengir á aldrinum tólf til þrettán ára. Krakkarnir eiga sér ýmsar fyrirmyndir í handboltanum en vinsælustu landsliðsmennirnir reyndust vera Viktor Gísli Hallgrímsson og Óðinn Þór Ríkharðsson. Krakkarnir senda góða strauma til landsliðsins. „Aldrei gefast upp og þjóðin stendur með ykkur,“ segir Atli Hrafn Hlynsson, 13 ára.