Þjóðin valdi Janus Daða mann leiksins

Áhorfendur völdu Janus Daða Smárason sem mann leiksins í fyrsta leik Íslands gegn Ítölum á Evrópumótinu í handbolta 2026. Valið fer fram í gegnum Rúv Stjörnur appið. Janus Daði skoraði 8 mörk í leiknum og gaf 3 stoðsendingar að auki. Þá átti hann góða frammistöðu varnarlega og var með einn stolinn bolta. Þá nýtti hann 8 af 9 skotum sínum. Gísli Þorgeir Kristjánsson var annar í valinu og Viktor Gísli Hallgrímsson var sá þriðji. Næsti leikur Íslands er gegn Pólverjum á sunnudaginn klukkan 17:00. Hvernig er kosið? Hægt er að sækja Rúv Stjörnur í App-store eða Play-store og kjósa mann leiksins í öllum leikjum Íslands á mótinu. Þeir sem kjósa og skrá sig í pott geta átt von á að vinna nýja landsliðsbúninginn.