Danir bjóða Bandaríkjaher á heræfingu á Grænlandi

EPA / MICHAEL KAPPELER / POOL Yfirmaður herstjórnar Danmerkur á Norðurslóðum, Søren Andersen, býður Bandaríkjunum að taka þátt í sameiginlegri heræfingu á Grænlandi. Bandaríkjaher hefur ekki enn brugðist við boðinu. Andersen segir að engin skip frá Rússlandi eða Kína séu í nágrenni Grænlands. Alls eru um 200 hermenn Bandaríkjahers staðsettir á Grænlandi í Pituffik-herstöðinni á norðvestanverðu landinu. Bandaríkjaher hefur rétt til hernaðarveru á Grænlandi samkvæmt samningi sem gerður var við Danmörku 1951.