Það er ýmislegt fleira á döfinni í Grindavík en uppbygging eftir eldgos. Nokkur óvenjuleg sprotafyrirtæki hafa tekið þar til starfa. Súkkulaðigerðin Neskja, sem opnuð var í nóvember, er rekin af hjónunum Ívari Kjartanssyni matreiðslumeistara og Chidapha Kruasaeng eftirréttakokki og súkkulaðigerðarmanni, sem tvisvar hefur unnið gull með íslenska kokkalandsliðinu. Hún segir marga hafa komið og verslað hjá þeim um jólin. „Það er mjög gott fólk hérna.“ Austar í Hafnargötu liggja hnausþykk plaströr meðfram húsnæði Þorbjörns, þar sem fiskur var unninn þar til nýlega. „Við völdum að fá aðstöðu hér því staðsetningin er góð fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Davíð Leifsson, forstjóri og annar tveggja eigenda Viknordik. Leiðrétting: Í fréttinni er minnst á húsnæði Þormóðs Ramma, hið rétta er Þorbjörn.