Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi tvo sjúkrabíla og einn dælubíl.RÚV / Ragnar Visage Slökkviliðið var kallað á vettvang um ellefuleytið á föstudagskvöld þar sem fimm bílar höfðu lent í árekstri á Reykjanesbraut. Einn bíllinn hafði keyrt á vegrið og hinir fjórir lent í árekstri. Jón Kristinn Valsson varðstjóri greindi fréttastofu frá því að tveir hafi verið fluttir á slysadeild eftir áreksturinn. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafi sent tvo sjúkrabíla og einn dælubíl á vettvang og Brunavarnir Suðurnesja hafi sent slíkt hið sama. Ekki hafi þó þurft að nota klippur til að ná neinum út úr bifreiðunum.