Búast má við rigningu í kvöld á sunnan- og vestanverðu landinu

Búast má við hæglátu veðri í byrjun dags. Breytileg átt og þurrt í flestum landshlutum. Smáél verða á stöku stað norðanmegin á landinu. Styttir upp fyrir hádegi. Hiti um eða undir frostmarki. Síðdegis byrja suðaustlægar áttir að vaxa. Í kvöld má búast við vindi, 13 til 20 metrum á sekúndu. Þá fer einnig að rigna á sunnan- og vestanverðu landinu með hlýnandi veðri. Hiti verður í kringum 2 til 7 stig um miðnætti. Áfram verður þurrt að mestu norðan til og hiti í kringum frostmark. Á morgun verður víðast hvar suðaustan vindátt, 13 til 20 metrar á sekúndu. Rigning eða súld sunnanlands en þurrt fyrir norðan. Hiti 3 til 8 stig. Búast má við að þurraþræsingurinn frá áramótum sé senn á enda á suðvestanverðu landinu.RÚV / Ragnar Visage