Ekki hjón í raun því hjúskaparheit gervigreindar hrukku skammt

Hollenskt par sem taldi sig hafa gift sig í apríl í fyrra hefur verið úrskurðað ógift fyrir dómi vegna þess að hjúskaparheit þeirra, skrifuð með aðstoð gervigreindar, uppfylltu ekki þau skilyrði sem hollensk lög gera til orðalags við hjónavígslur. Hjón verða að heita því að þau játist hvort öðru og að þau muni uppfylla þær skyldur sem hjónaband geri til þeirra. Málið fór fyrir dóm í Zwolle, í norðurhluta Hollands. Parið vildi óformlega borgaralega athöfn og bað vin sinn um að gefa þau saman. Hann notaði gervigreindina ChatGPT til þess að aðstoða við að semja hjúskaparheitin. Dómstóllinn segir að þar hafi farist fyrir að uppfylla ákveðin lagaleg skilyrði. Í athöfninni hétu þau því að „standa saman í dag, á morgun og um alla tíð. Hlæja saman, þroskast saman og elska sama hvað“. Dómurinn vitnar til þess að í vígslunni hafi þau verið lýst „ekki aðeins hjón heldur umfram allt liðsheild, brjálað par, ást og heimili hvort annars“. Ekkert í vígslunni hafi fjallað um lagalegar skuldbindingar þeirra og því hafi þau ekki formlega verið gefin í hjónaband og hjúskaparvottorð þeirra því ranglega skráð. Parið segir að þetta hafi verið óviljaverk og að opinber starfsmaður við athöfnina hafi ekki gert athugasemdir.