Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fer nú með stjórnarmálefni um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir eldra fólk samkvæmt nýjum forsetaúrskurði. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Inga var félags- og húsnæðismálaráðherra og fór þar með málaflokkinn en Ragnar Þór Ingólfsson tók við ráðuneytinu nú í janúar á sama tíma og Inga Sæland tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra. Ábyrgðin á stjórnarmálefninu mun þó enn liggja hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í verður ekki breytt en forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra hefur verið breytt.