Andri Már: „Alltaf markmiðið að spila á stórmóti“

Andri Már Rúnarsson, leikmaður Erlangen í Þýskalandi, var kallaður inn í landsliðshóp Íslands í byrjun janúar þegar ljóst var að Kristján Örn Kristjánsson væri meiddur. Hann fékk tækifæri strax í fyrsta leik Íslands á mótinu í þrettán marka sigri á Ítalíu í gærkvöldi. Það var mikill spenningur og tilhlökkun að koma inn á og svo tók bara við fullur fókus að gera vel þegar maður kom inn á. Andri skoraði eitt mark í leiknum þegar hann breytti stöðunni í 38-26. Hann er af landsliðsfólki kominn því pabbi hans Rúnar Sigtryggsson spilaði fyrir Ísland og mamma hans Heiða Erlingsdóttir sömuleiðis. Það var alltaf markmiðið að ná að spila stórmót með landsliðinu og auðvitað mjög gaman að þetta sé svona skemmtileg saga. Ég er klár í meira og gaman að hafa upplifað þetta. Og bara áfram. Andri Már Rúnarsson spilaði sinn fyrsta landsleik á stórmóti gegn Ítölum á EM í gærkvöldi. Þá skoraði hann jafnframt sitt fyrsta mark.