Viðurkenndi að þúsundir hefðu látið lífið

Ali Khamenei, æðsti klerkur Írans, viðurkenndi í fyrsta skipti opinberlega í dag að þúsundir hafi látið lífið í mótmælum í landinu síðustu vikur. Samkvæmt upplýsingum frá Iranian Human Rights Activists News Agency, mannréttindasamtökum sem starfa í Bandaríkjunum, hafa yfir þrjú þúsund látist í mótmælunum. Erfitt hefur reynst að sannreyna hversu margir hafi látist þar sem stjórnvöld lokuðu fyrir aðgang að internetinu í upphafi árs. Í ræðunni sakaði Khamenei óeirðaseggi um að bera ábygrð á mannfallinu. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hvatt mótmælendur til að halda áfram og hótað hernaðarlegri íhlutun drepi stjórnvöld fleiri mótmælendur. Ali Khamenei, æðsti klerkurinn í Íran.AP/Office of the Iranian Supreme Leader / Uncredited