Szoboszlai skýtur í slánna úr víti í dag.EPA / ADAM VAUGHAN Liverpool og Burnley gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta rétt í þessu. Dominik Szoboszlai klúðraði vítaspyrnu á 32. mínútu er hann átti bylmingsskoti í þverslánna og út. Liverpool sóttu án afláts í leiknum og Florian Wirtz kom liðinu yfir með hnitmiðuðu skoti í skeytin nær á 42. mínútu. Burnley menn komu ákveðnir til leiks og Marcus Edwards jafnaði metin á 65. mínútu. Hann kláraði vel í fjærhornið úr miðjum teignum. Þrátt fyrir stöðugan sóknarþunga Liverpool enduðu leikar með 1-1 jafntefli. Liverpool er í 4. sæti með 36 stig og Burnley er sem fyrr í fallsæti. Liðið er í 19. sæti með 14 stig.