Fram kom í umfjöllun Spegilsins að forsætisráðuneytið hafi þurft að leggja í töluverðar viðgerðir vegna skemmda sem orðið hafa á bílum ráðuneytisins, sem það telur vera eftir gesti á útiveitingasvæði Petersen-svítunnar, þegar þeir missa eða henda fram af svölunum glerglösum eða -flöskum. Tjónið sé upp á aðra milljón króna. Þá hefur þurft að þrífa ælu af bílum og þakgluggum á skrifstofuhúsnæði ráðuneytisins. Ráðuneytið hefur tilkynnt málin til lögreglu. Eigandi Petersen-svítunnar segir vandamálið ekki bundið við þennan eina skemmtistað. Ekki þurfi að ganga langa vegalengd í miðbæ Reykjavíkur til þess að finna skemmdir og óþrifnað eftir góðglaða gesti næturlífsins.