Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir erfiðara fyrir fyrirtæki sem eiga í viðskiptum við Bandaríkin að gera áætanir eftir tollahótanir Bandaríkjaforseta. Þetta undirstriki þá óvissu sem ríki í alþjóðaviðskiptum. „Og það virðist ekki lát á þeirri óvissu,“ segir Sigurður. „Við trúum því að rétta leiðin til að leysa úr þessum málum sé með samtölum en ekki með þeim aðgerðum sem boðaðar hafa verið, það eru miklir viðskiptalegir hagsmunir í húfi á báða bóga.“ Sigurður segir að flest ríki heims vinni að gerð viðskiptasamninga við Bandaríkin. „Ísland er þar með talið og við höfum bent á og höfum mikla trú á því að í því geti falist tækifæri í viðskiptum Íslands og Bandaríkjanna með gagnkvæman ávinning að leiðarljósi.“ Gætu tollar á þessi átta Evrópuríki haft áhrif á þann samning? „Já, þetta getur sannarlega haft áhrif.“ Bandaríkin mikilvægasti markaðurinn fyrir hugverk Helsti útflutningur Íslands til Bandaríkjanna eru lækningavörur, lyf og sjávarafurðir. „Þó Evrópa sé okkar langstærsti markaður þá er Bandaríkjamarkaður sennilega mikilvægasti markaðurinn fyrir afurðir hugverkaiðnaðarins sem er fjórða stoð útflutnings og sú stoð sem gæti orðið verðmætasta stoðin við lok þessa áratugar. Þannig að út frá því eru miklir hagsmunir í húfi fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélag,“ segir Sigurður. Fyrirsjáanleikinn minni en í eðlilegu árferði Hefur þetta áhrif á getu fyrirtækja til að gera langtímaáætlanir, sem varða viðskipti við Bandaríkin? „Fyrirsjáanleikinn er miklu minni en almennt í eðlilegu árferði þannig að þetta hefur auðvitað áhrif á það. Það er erfitt að gera plön þegar staðan er svona og óvissan svona mikil.“